|
|
02.03.2008 19:40:48 / rutta
jæja stutt í þetta sinn, sit hér hjá Sæunni síðasta kvöldið í Danmörku og veit ekki alveg hvernig mér líður. Seldum húsið í gær og afhentum lyklana í dag, það var frekar undarleg tilfinning að yfirgefa "húsið mitt" og vita að maður kæmi aldrei aftur þangað. Höfum verið í konunglegu uppihaldi hjá Sæunni og Hilmari síðustu daga, eftir að við skelltum öllu dótinu í gáminn. Á morgun er svo lest kl 7:25 og flug 12:15, það er að segja ef það verður ekki seinkun hjá Express  (við skulum bara ekkert vera að ræða seinkanir núna, hef fengið nóg af þeim). Allavega lendum við á klakanum á morgun, og ævintýrið búið, og snjór kuldi og rok sem býður okkar, en heilmikil vinátta og ættingjar til að ylja manni um hjartað, öðruvísi er ekki hægt að búa á þessu skeri. Annars segi ég bara pass, hér skein sólin í dag og krókusar og önnur blóm brosa við manni hvar sem maður fer, svo er maður ekki alveg undirbúinn að segja bless við fólkið svo ég held ég biðji bara að heilsa ...lífið er undarlegt, sól og snjór sama dag en einnig söknuður og tilhlökkun...
»
10.02.2008 09:58:20 / rutta
Jæja þá erum við mætt á klakann,en aðeins í heimsókn, sem verður þó örugglega síðasta heimsóknin. Því það styttist í flutning. Við tókum ekki styðstu leið heim því ferðalagið byrjaði fimmtudaginn 7.janúar kl 06.55 á lestarstöðinni í Horsens, en endaði ekki fyrr en föstudaginn 8.jan 15.30  jebb við við fengum að bíða á Kastrup í 26 tíma og ekki meir um það nema ég er harðákveðin að með Icelandexpress flýg ég ekki aftur, punktur basta. Annars rétt sluppum við því vélarnar á eftir sátu í fleiri klukkutíma út á braut og þurfti heljarinnar aðgerð að ná fólkinu út .En annars var tilgangur ferðarinnar sá að koma Hörpu ömmu á óvart, því hún var að halda upp á 70 ára afmælið sitt á föstudeginum, og ekki komum við bara ömmu á óvart heldur öllum í fjölskyldunni því það vissi enignn að við værum að koma nema tengdó og Gísli að sjálfsögðu, og það tókst svo sannarlega að koma fólkinu á óvart, þvílík fagnaðarlæti hehehe. En magnað var að upplifa að fljúga úr vori inn í vetur, því í Danmörku hefur verið svo mildur vetur að grasið hefur verið grænt allan tímann og fyrir 2-3 vkum fóru litlu laukarinr að kíkja upp svo út um allt eru lítil gul og hvít blóm, en svo lendum við (og reyndar ein af ástæðum seinkunarinnar) í hörku vetri. Ég vil ekki segja að ég hafi verið búin að gleyma íslenskum vetri en ég verð samt að viðurkenna að mér krossbrá að mæta veðurguðunum í slíkum ham, nú skil ég af hverju veðrið er svona gott í Danmörku, þeir þurfa að hafa sig alla við að blása og frysta á norðurhjaranum svo þeir hafa ekki tíma til að kíkja yfir hafið. En þetta ryfjaðist annars fljótt upp. Annars er fínt að frétta af okkur, við erum búin að taka hús á leigu, að 'Ishússtíg 12 í Keflavík og þvílíkur draumur, þetta er bara húsið mitt, ég veit bara að ef ég ynni í lotto yrði það mitt  . Svo nú erum við bara að plana ferð heim í Buen 12 (hvað er þetta með 12 ?) til að pakka og klára mála, en reyndar förum við bara 3 því Viktor Ingi kemur ekki með, hann hefur samið við ömmu Sólveigu að fá að vera hjá þeim á meðan, svo hann er bara að fara kíkja í Myllubakkaskólann í næstu viku. Það ætti nú ekki að væsa um hann umvafinn að ömmum og öfum og langömmum og frændum og frænkum, hann er hreinlega í skýjunum með þetta allt saman. Jæja ég ætla að fara heilsa upp á veðurguðina bið að heilsa í bili Rut
»
02.02.2008 23:23:59 / rutta
Sæl aftur. Héðan er eitt og annað að frétta en ég er ekki viss hvað skal segja. Við gerðum tilboð í hús en stóðumst því miður ekki greiðslumat, sem er víst ansi algengt þessar síðustu vikur hjá fleirum en okkur. Ég varð því að sætta mig við að það gengi bara ekki upp og að við þyrftum að leigja, en það er nú ekkert það versta sem gæti gerst, svo ég tók mig til og setti inn auglýsingu í Víkurfréttir. Daginn eftir hringdi fasteignasalinn og sagði mér að eigandi hússinns væri ekki alveg sáttur með að við gætum ekki keypt og vill meina að við getum ekki bakkað út úr þessu, svo nú eru lögfræðingar komnir í málið, en ekki var það allt því á fimmtudaginn hringdi svo maður og bauð okkur hús til leigu já svo nú vitum við ekki alveg hvað snýr upp og hvað snýr niður í þessu lengur, þannig að kannski erum við á leiðinni heim ja eða hvað já og svo komu hér hjón og skoðuðu húsið okkar sem er að verða tilbúið, og enn annar spurði hvort hann mætti leigja það, svo er Gísli að fara heim á morgun og byrjar að vinna á mánudaginn og svo og svo og svo ég sit allavega hér og veit ekki hvert eða hvenær ég fer nokkuð, það verður bara að koma í ljós, ég læt ykkur nú vita um leið og ég veit eitthvað sjálf, hafið þið það nú sem best, bið að heilsa í bili Rut
»
20.01.2008 15:05:45 / rutta
Vildi bara láta vita að Gísli tók prófið með stæl og fékk 12 í
einkunn (sem er það hæsta sem er gefið) svo hér á bæ eru allir í
skýjunum með áfangann. Hann útskrifast svo 25.janúar og heldur heim
á leið í vikunni þar á eftir. Sennilega verðum við á svæðinu í
kring um 1.mars en þá ættum við að fá húsið afhent (jaaa ef allt
gengur upp! ). bið að heilsa Rut
»
16.01.2008 20:25:20 / rutta
Sælt veri fólkið Ja það vill svo til að við erum á lífi, hvort sem þið trúið eða ekki. Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki staðið mig sem skyldi að blogga, en svona er þetta bara. Því miður verð ég líka að segja ykkur frá því að ætli ég fari ekki að hætta því líka næstu vikurnar Já ég trúi því varla sjálf að Danmerkurævintýrið er senn á enda, við erum að flytja á Klakann. Satt að segja finnst mér rosalega sorglegt að vera fara yfirgefa vini mína og baunina. En samt hlakka ég nú mikið til að hitta alla vini og ættingja á eyjunni litlu , en þetta er svo blandin tilfinning að það eiginlega ekki hægt að lýsa henni, þetta þekkja aðeins þeir sem hafa prófað þetta, og satt að segja langar mig að stökkva hæð mína af gleði eina stundina og hina er ég komin að því að gráta. Annars lítur út fyrir að við séum búin að festa okkur hús en bíðum reyndar ennþá eftir svari frá bankanum (þeir eru nú ekki svo kátir þessa dagana að lána þeim sem ekkert eiga ) en þetta kemur bara í ljós, en ef allt gengur upp þá fáum við afhent 1.mars einbýlishús að Birkiteigi 15 í Keflavík (það heitir víst Reykjanesbær, en ég segi eins og Rúnni að ég bý aðeins í Keflavík) , svo nú er allt á fullu að klára húsið (mála og parketleggja) svo hægt sé að setja á sölu sem fyrst. Af öllum er gott að frétta, Afi Gústi er í heimsókn í 3 daga, hann ætlar að vera viðstaddur þegar Gísli fer í próf sem verður kl 8 á morgun fimmtudag jebb það er komið að lokaprófi hjá kallinum, sem er pínustressaður, þó hann vilji nú ekki viðurkenna það gangandi um gólf og talar eitthverja steypu sem ekkert samhengi er í. En það á örugglega eftir að ganga vel á morgun það er ég viss um. Börnin eru í fínu formi, Viktor bíður spenntur eftir að fara flytja en Hekla er svona á báðum áttum, hlakkar til en samt ekki. Gísli fer reyndar heim í lok janúar því hann á að byrja vinna 1.feb. Hann var ráðinn byggingarstjóri á stækkun Samkaupa í Keflavík og eitthverri byggingu sem á að reysa fyrir framan verslunina (á lóðinni bak við Kentucky) svo það verður nóg að gera hjá honum næsta árið, þannig að ef þið sáuð tækifæri í að fá hann í sólpallasmíði eða þakskiptingu í sumar, getið þið gleymt því. Ég mun há harða baráttu gegn laxinum í sumar um þá fáu frídaga sem kallinn kemur til með að fá , ja ekki nema mér sé boðið með jaaaa það hlítur að vera DVD spilari í þessum veiðihúsum, ég get vel setið þar á meðan aðrir sulla í pollunum fyrir utan Jæja bið að heilsa í bili, læt ykkur nú vita ef þetta gengur allt saman upp eða hvort við verðum að byrja leitina uppá nýtt ja vonandi ekki tengdapabba vegna, held hann sé búinn að skoða hálfa Keflavíkina í leitinni að "HÚSINU". Hafið það sem allra best, kveðja úr Buen 12. 
»
02.10.2007 20:46:54 / rutta
Jæja nú veit ég ekki alveg hvað ég á að skrifa því ég veit ekki alveg hvar ég er stödd í þessum heimi í dag. Ef þið hafið eitthverntíman búið í "útlöndum" þá vitið þið örugglega hvað ég á við. Nú er að koma að skólalokum og spurningin "hvað á að gera?" er farin að vera daglegur gestur á bænum. Og það er ekki svo auðvelt að svara þessu, því einn daginn er ég hreinlega búin að pakka og farin með næstu vél og hinn daginn get ég ekki hugsað mér að fara, ja ekki nema út í garðinn minn að slá grasið !!! Það eru kostir og gallar við allt saman. Við vorum búin að sjá hús í Garðinum um daginn og þegar við svo ákváðum að láta slag standa var húsið farið af netinu. Eitthverju seinna sáum við þessa fínu íbúð í Keflavík, með bílskúr meira að segja (nauðsyn í mínum augum) og við hringdum til að fá leyfi til að láta skoða hana fyrir okkur, en hvað ? Jú parið sem átti í búðina var hætt við í bili !!!!!!!!! Svo nú sit ég og hugsa hver er að láta mig vita að ég sé ekki alveg að gera rétt. Ja Sæunni og Soffíu finnst ekkert athugavert við þetta, frekar en Báru, þær vilja ekki á það minnst að ég sé að fara flytja. Svo fékk ég þær fréttir hjá henni Soffíu minni í dag að hún væri búin að kaupa sér búgarð (ég er ekk að ljúga) með 7 svefnherbergjum (loksins pláss fyrir öll börnin) og þá hugsaði ég með mér, ja ef ég flyt eitthvað þá verður það í götuna til hennar úti í Radved, rétt fyrir ofan Sæunni mína , sem flytur að sjálfsögðu líka, við gætum stofnað kommúnu .... ...ja nú er ég kannski komin á einum og hátt flug. En eins og er þá er ég hér og það verður bara að koma í ljós hvað framtíðin beri í skauti sér, hvort það verði klakinn, danskt háfjallaloft eða eitthvað allt annað. Ég held því að ég biðji að heilsa í bili, hafið það gott , kveðja Rut
»
12.09.2007 20:56:21 / rutta
Þá get ég nú sagt ykkur eins og er, að ég hef hreinlega ekki nennt að blogga, svo þar hafið þið það. En nú er ég hér sest en lofa ekki stórri færslu, því ég skar nær af mér puttann á mánudaginn og er því pínu lengi að pikka. Héðan er annars allt gott að frétta, allir komnir á fullt í skólum, sumir í fasta liði, aðrir að reyna drösla sér í gang og enn aðrir með pínu magaverk fyrir komandi önn, guess who ? ææææjjjj greyið. Hekla Sólveig átti afmæli í lok ágúst og varð daman 11 ára, hvorki meira né minna. Það beið fullt borð af pökkum þegar hún kom fram, búið að troða út töskurnar þegar komið var frá Íslandi, og mín var nú ekki lítið ánægð. Svo var haldin mikil veisla, en allur bekkurinn hennar mætti á föstudeginum eftir skóla og skemmti sér saman svo erum við svona smá saman að koma okkur fyrir og aðeins byrjuð að mála, magnað hvað smá málningarklessa getur gert mikið fyrir andlega liðan heimilisfólks, þá er ég ekki að djóka, því mig langaði eiginlega ekki að borða inni í eldhúsinu fyrst. það var á því einhver ljósgulur litur sem fékk allt til að líta út eins og fátt hafi verið gert í eldhúsinu síðustu 30 ár en REYKT, jakkkk. En smá hvít sletta og mér þykir þvílíkt vænt um eldhúsið mitt og er nú svo komið að ég tími varla að skipta um innréttingu, hún er með mikla sál Um daginn var svo haldinn skátadagurinn mikli í Egebjerg, og höfðu Viktor og Þrándur í nógu að snúast, því það voru bundin saman alls konar skilti, turnar og leiktæki, sem hægt var að prófa. Helgrillaður grís var svo á boðstólnum fyrir skátana og fjölskyldur um kvöldið. Mér tókst svo að skera í puttan á mér á mánudaginn, en það ætlar að reddast, hann var allavega LÍMDUR á aftur og svo vona ég að hann hangi á og svo er Gílsi að fara til Íslands á laugardaginn í heila viku, að gera hvað ? Jaaaa giskið þið nú . jæja bið að heilsa í bili, setti inn nokkrar myndir, hafið það sem allra best, það ætlum við að gera kveðja Rut
»
13.06.2007 22:00:44 / rutta
Sæl öll sömul, ákvað að láta vita aðeins af mér og mínum. Var að fá
internetið í gagnið rétt áðan, og svo að þið getið fylgst með þá
gerðist það að ; ég útskrifaðist föstudaginn 25.maí og hélt 3 daga
veislu (ekki að grínast) og naut mín í botn, þetta var yndislegt að
upplifa. Á sunnudeginum var svo flutt (fengum lykilin á fimmtudegi
fyrir útskrift) og sofið fyrsta nóttin, vikuna þar á eftir vorum
við á fullu að mála mosann(þó aðalega Gísli) hann var svo sætur
maðurinn minn, hann bað um vikufrí til viðbótar til þess að geta
málað áður en hann færi, bara til þess að létta mér lífið, fannst
ég greinilega hafa haft nóg á minni könnu(það þarf nefnilega að
skila íbúðunum máluðum og þrifnum). Og það gerði hann og fór svo
til baka til Íslands á sunnudeginum viku seinna. Ég var svo með
sýningu í Fussingö, ásamt öðrum útskriftarnemum, og er að fara
setja upp enn aðra næsta mánudag. Gísli kemur til okkar á
föstudaginn  jebb nýfarinn og á leiðinni, svona er það bara að
vera ástfanginn, við getum bara ekki haldið lengur út, við söknum
hvors annars svo mikið. Svo einu sinni enn er hann svo sætur að
dröslast alla þessa leið til konunnar sinnar, fyrir 2 daga, jebb
hann kemur á föstudaginn og fer á mánudaginn, en það verður vel
þess virði, því síðustu 2 vikurnar verða þá styttri að líða. Ég
býst nefnilega við því að ég og krakkarnir komum í byrjun júlí og
verðum líklegast til 24.júlí. En nú ætla ég að láta staðar numið,
ég er á fullu að mála eldhúsið, búin að taka innkeyrsuna í gegn,
spurning hvað verði svo, jú ég verð að koma tómatplöntunum mínum
inn í gróðurhúsið og setja líka eins og eina gúrkuplöntu líka, ef
skekynni að það yrði gúrkutíð í Buen 12. Jæja skrifa nú meira
seinna, og veit ekki með myndir, hef ekki sjálf séð eina einustu
mynd, finn ekki vélina mína, og allar myndir sem voru teknar í
útskriftinni fóru til Íslands, ætli ég verði ekki að plata einhvern
um kópíur. En allavega er á lífi, útskrifuð og flutt. Bið að heilsa
Rut
»
11.05.2007 18:26:40 / rutta
Jæja héðan eru svo
sem ekki margar fréttir, en þá frekar ein stór, því við vorum að
kaupa hús í Egebjerg, og hana nú. Þetta gekk nú frekar hratt fyrir
sig og svo fengum við já í dag, þannig að vikan hefur verið heldur
tens, ef þið skiljið hvað ég á við.
Svo er ég ekki að grí
nast, ég á garð í fyrsta sinn og engan smá garð, ég get ekki
beðið eftir því að koma fingrunum í hann. Mig hefur alltaf
dreymt um garð en einhvernvegin alltaf búið í garðlausum
húsum, en nú fæ ég hann á silfurfati, eins og kannski sést á
myndinni 
Annars er allt gott að frétta, Viktor kemur frá Íslandi í kvöld,
þar sem hann hefur verið í skólaferðalagi síðan á mánudaginn.
Tengdamamma kemur svo á morgun og ætlar að sjá um börn og bú
síðustu vikuna í skólanum mínum, og ekki veitir af því áætlunin
fyrir næstu daga í skólanum er löng . Gísli er í praktík á
Íslandi, greyið fer í sakleysi sínu í praktík og á meðan verslar
konan hans heilt hús og neitar að fara strax heim já ég
varði hann við því að fara hehe. Jæja setti inn nokkrar myndir,
skrifa kannski meira seinna, ætla að fara taka pínulítið til áður
en prinsinn kemur heim, bið að heilsa Rut
»
03.05.2007 08:50:43 / rutta
Sæl veri folkid, eg sit herna i skolanum og bid eftir
kennaranum, hann er adeins upptekinn, eg er ekki eini
tolvufavitinn, hehe . Hedan er annars allt gott ad fretta,
Gisli er farinn til Islands og verdur tar i 10 vikur i praktik
neiiiii ekki lata ykkur detta tad til hugar ad eg liggi bara
og væli, onei her er of mikid ad gera, enda ekki nema 3 vikur i
utskrift og eitt og annad sem tarf ad redda, eins og t.d moppum og
kynningarbæklingum, sem er einmitt astædan ad eg sit her vid
tolvuna. Vid erum svo heppin ad hafa Bo grafikkennara, sem er lika
snilli a tolvur, okkur til handa tvi annars væri ekki svo mikid sem
nafnspjald buid til hvad, ta meira en annars vili eg bara
lata vita ad eg og mitt folk er a lifi og svo skellti eg inn
nokkrum myndum sem voru teknar af teim hlutum sem voru tilbunir um
daginn, og voru teknar af "alvoru"ljosmyndara kikid tid endilega ,
jæja kennarinn er a lausu ...
»
18.04.2007 07:29:51 / rutta
Erum á leið til Köben að fara á tónleika með Sálinni og Stuðmönnum,
hver veit nema ég nenni að blogga þegar ég kem heim. Bið að heilsa
í bili kveðja rut
»
15.03.2007 20:51:50 / rutta
Jebb... hér er bara snurl og aftur snurl.
Og ástæðan ? Jú ég og Viktor liggjum í bælinu, held það sé 3
skiptið síðan í lok febrúar . Og svo erum við
með þennan snilldar lækni, sem er næstum því búinn að skrifa
lyfseðil og þakka þér fyrir komuna áður en þú nærð að segja
honum hvað það er sem amar að . Í dag var hann um 3
mínútur að afgreiða mig og Viktor, skoða, spyrja hvað amar
að og skrifa út blóðprufuumsókn og þakka fyrir komuna,
Á ÞREMUR MÍNÚTUM, og þegar við komum upp á sjúkrahús til að
taka prufurnar stóð kona fyrir framan okkur sem var á undan
okkur hjá lækninum. Í dag var það ekki lyfseðill sem var
stilltur inn í prentarann hjá honum heldur blóðprufuumsókn.
Ég hef því tekið þá ákvörðun að skipta um lækni, en það er
hægara sagt en gert, því þau á kommúnunni mega ekkert segja
svo maður verðu bara að velja einhvern á listanum, en ég hef
unnið mína heimavinnu og er komin með 3 nöfn sem ég ætla að
athuga hvort eru á listanum, en ef ekki þá er bara að byrja
einhversstaðar og skipta svo bara aftur og aftur. Annars er
svolítið skondið að fara til læknis í Danmörkinni, þeir eru
ekki á heilsugæslustöðum eins og heima, heldur út um allt,
eins og okkar er með stofu í fjölbýlishúsi niðri í bæ sem í
þokkabót angar af tóbaki, enda ekki skrítið því pípan hans
situr á skifborðinu. En nóg um hann, ég er svo pirruð út í
hann að ég garga ef ég skrifa meira.
Annars er ekkert að frétta, mér líður ömurlega og
Viktori sömuleiðis, Gísli reynir að dröslast í skólan á mili þess
að stjana í kring um kjúklingana og Hekla greyið er upp á sjálfa
sig komin. En ég held í vonina að við fáum út úr þessari blóðprufu
á morgun og að einhver af læknunum sem ég hef fengið nöfnin á sé á
lausu (strax á morgun) því ég hef ekki tíma í að liggja í bælinu
viku eftir viku, mín bíður verkefni, Stórt verkefni, sem er ekki
komið almennilega í gang.Bið að heilsa , Rut 
»
12.03.2007 22:30:29 / rutta
...býður eitthver betur 17 stiga hiti, sól, blómstrandi krókusar og
fuglasöngur, hehe
»
12.03.2007 07:28:34 / rutta
Jæja þá er spurning hvar skal byrja. Í
síðustu viku var m.a tónleikar, skólaferð, eldur á spori,
lyklaafhending og.s.fr...
Á þriðjudaginn fór ég með skólanum mínum til
Köben, að skoða listasöfn og skóla (hinn konunglega...) og
vinnustofu. Við þurftum að vakna fyrir kl 5, því við áttu að vera
komin klukkan hálfsjö á rútubílastöðina kl 6.30. Það tókst þrátt
fyrir að bíllinn hennar Hjördísar neitaði allt í einu að beigja
(inni í miðri Aarhus) nema með miklum herkjum og við vorum ekki
alveg að finna stæði. Inn í rútuna komumst við og keyrði hún alveg
100 metra niður á bryggju þar sem við tókum bátinn. En við komumst
á réttan stað og í Köben var svo þrammað á milli , skóla, metrósins
(neðanjarðarlestin) og safna og allt skoðað, þó með mismiklum áhuga
. Um fimmleytið tók ég svo lestina heim til að ná
tónleikunum (THE TÓNLEIKAR) með hinni einu sönnu Dolly Parton. Hún
var bara snilld konan, það var bara einu sinni sem ég fékk æluna
upp í háls, þrátt fyrir heiftarlegt ofnæmi fyrir sveitatónlist og
öllu sem því fylgir . Jolyn og 9to5 var náttúrulega bara
upplifun, að sjá þessa 61 árs konu í sínu litla mínípilsi og með
sín risabrjóst og enn stærra hár syngja eins og fyrir 40 árum var
stórkostlegt, ég skemmti mér allavega konunglega og það gerðu Ólöf
og Sigga líka, en við fórum 3 saman eftir að hafa talið niður síðan
í oktober. Gísli fór svo til Köben á fimmtudaginn og gisti eina
nótt. Á sama tíma og Gísli var að dröslast af stað sátum við Sæunn
fastar í rósarunna í Skandeborg jebb alveg satt. Það kveiknaði
eitthversstaðar í á sporinu til Aarhus, svo var allt fullt í
Skandeborg svo lestin okkar var stopp (beint fyrir utan
runna, ég sagði það) og þar máttum við dúsa í um hálftíma þar til
lestin fékk leyfi til að fara inn á stöðina. Þar urðu allir að fara
út, því hún færi ekki lengra. Eftir að fólk hafði snúið sér í
hringi inni á stöðinni var tilkynnt í hátalarakerfið að næsta lest
færi frá spori 3 eftir stutta stund, svo allur skarinn þaus af stað
niður í göngin og upp á sporið...en þegar fyrsti maður var að
komast út heyrðist bípið og hurðarnar á lestinni lokast og hún fer.
Í stutta stund stóð fólkið og þagði en svo gaus upp mikill hlátur í
öllum skaranum, ótrúlegt að hún hafi ekki verið beðin um að bíða í
5.mín því það voru örugglega 50-60 strandaglópar á stöðinni. Ég er
alltaf að sannfærast meir og meira að danir eru mjög lélegir í
skipulagningu (þó þeir vilji nú halda öðru fram)þeir eru svo seinir
að hugsa greyin . En við Sæunn drösluðum okkur undir brautina og
náðum strætó sem var bara lengi á leiðinni og komum allt of seint í
skólan. Á laugardaginn kíktum við á Óla og Brynju sem voru búin að
fá lyklana að húsinu sínu uppi í Egebjerg og voru að byrja að mála
(ég ætla ekki að segja ykkur hvað mig langaði að vera í sömu
sporum, orðin pínulítið leið á plássleysi og sardínufílingi) og það
er bara kósí, ég verð að taka mynd af eldhúsinu og sýna ykkur, það
er upprunalegt frá 1950 eða eitthvað svoleiðis með rósóttu
veggfóðri og det hele. Um kvöldið fórum við heim til Vilborgar og
Sverris, sem búa líka í Egebjerg, að spila félgasvist. Þar voru
mætt 8 hjón (s.s.16manns) og spilað var á fjórum borðum, þetta var
bara gaman og mikið hlegið og talað, þetta verður örugglega
endurtekið. Haldiði ekki að hann Gilli minn hafi tekið þetta og
fékk forláta farandbikar að launum. Hann er greinilega mjög
óheppinn í ástum því hannn vinnur öll spil sem hann spilar, en ég
er greinilega mjög heppin því ef það eru spil: þá tapa ég alltaf
já já ég bara hlæ að þessu, annars erum við nú bara skírt
dæmi um jing og jang, hann óheppinn og ég heppin hehehe, góð
blanda. Í gær skelltum við okkur svo í Randers regnskov sem er
dýragarður (innandyra) í þremur glerkúlum sem eru eins og
hitabeltisskógur með öllu, þá meina ég öllu, öpum, fuglum, slöngum
og öðru þar á milli já það var gott að komast aftur út í bíl
heheh
| |
|
| |
 |
Viktor og Hekla ásamt glassurit
fuglum.
Og svona fyrir veðurþyrsta, þá er 15 stiga hiti,
sól og allt orðið grænt eins og sést á myndinni sem við tókum á
leið heim í gær, hehehe, það er nóg pláss ef einhver vill koma í
heimsókn 
Annars er ég heima núna, hann Viktor Ingi er
lasinn,svo ég verð hjá honum eitthvað fram á daginn, sjáum svo til
hvenær Gisli kemur heim, hann á víst að skila eitthverju á morgun í
skólanum. Annars var Viktor veikur í þarsíðustu viku, vona að
þetta taki fljótt yfir hjá honum. Jæja ég bið að heilsa í bili,
hafið það sem allra best, já svo setti ég inn nokkrar myndir frá
Köbenferðinni og Randersferðinni. Kveðja Rut
»
04.03.2007 21:06:33 / rutta
Hekla Sólveig Gísladóttir, með verðlaunin sem hún hlaut í danska
meistaramótinu í hiphop dansi síðasta laugardag, hún stóð sig eins
og hetja, ekkert smá flott hjá henni, bara flottust.

Hópurinn að nýta síðustu mínúturnar til að æfa sporin. Þessar
stelpur hafa staðið í ströngum æfingum í rúma 3mánuði, enda stóð
árangurinn ekki á sér.
Mín kona einbeitt, en eitthvað er nú glottið á henni líka
!!!
Það var fullur salur af fólki alls staðar frá Danmörku sem kom
að styðja liðin...
...og að sjálfsögðu voru Viktor Ingi, mamma, Snúlli og Kvik mætt
til að styðja stelpuna.
Hekla alsæl með daginn, og Karen ekki minna ánægð með vinkonuna,
bara flottar stelpur.
Jæja skrifa nú kannski seinna, en vildi endilega láta ykkur vita
af stóru fréttunum. Við erum alveg að springa af stolti af henni
Heklu okkar, hún var rosalega flott bið að heilsa Rut
P.s og fyrir ykkur sem eru alltaf að spá í veðrið þá var 10
stiga hiti, sól og fuglasöngur hér í morgun, og mikill vorhugur
kominn í fólk 
»
Síður: 1 2 3 ... 14
|
|